Markmið: 14

Líf í vatni

Open the SDG in Presentation mode
Þrír fjórðuhlutar jarðar eru þaktir vatni en aðeins 2,5% þess er ferskvatn; mest er er það annars sjór. Dýpstu hlutar hafsins eru þau svæði sem eru minnst rannsökuð á jörðinni. Hvað leynist þarna niðri? Hvaða lífverur höfum við ekki uppgötvað enn? Það sem við vitum fyrir víst er að mannkyn hefur haft lífsviðurværi af sjó og vötnum allt frá upphafi, en við höfum ekki gætt þess að ganga vel um þennan bláa fjársjóð.

„Lengi tekur sjórinn við“ sagði fólk gjarnan, og staðan er sú að við göngum um hafið líkt og það sé ruslahaugur. Samkvæmt umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna enda 8 milljónir tonna af plasti í hafinu árlega. Lífríkinu í hafinu stendur mikil ógn af þessu. Fiskar, spendýr og fuglar eru í bráðri hættu vegna plastmengunar. Fjórtánda Heimsmarkmiðið segir að ríki heims skuli vernda hafið og nýta auðlindir þess á sjálfbæran hátt. Það er mikilvægt að fyrirtæki og stjórnvöld fari í aðgerðir til að draga úr mengun, vinna gegn ofveiði og styðja við lífkerfi hafsins. Hafið þekkir engin landamæri og því þarf alþjóðlegt samstarf um þetta markmið. En það er líka mikilvægt að sem flestir, þú og ég þar með talið, átti sig á hve mikilvægt það er að standa vörð um líf í vatni svo að við reynum öll að leggja okkar af mörkum.

Trúarlegar vangaveltur

„Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu. Þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór... Öll vona þau á þig að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma“ (Davíðssálmur 104.25-27). Þannig lýsir Biblían lífinu í vatni. Fyrst sem fjölbreyttu lífríki sem sé stærra og meira en við getum mögulega gert okkur í hugarlund. Næst sem viðfangi umhyggju Guðs. Guð er lífgjafi sem nærir sköpunarverkið og líkt og smáblómið í þjóðsöngnum okkar þá þekkir náttúran skapara sinn og tilbiður hann. Lífið sjálft er nefnilega meira en bara við mannfólkið, líf okkar er ofið inn í samhengi sem er svo miklu stærra.

Hugsanlega er það tíðarandinn en nú virðist sem mörgum finnist það lítils virði sem þeir þekki ekki. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því sem við sjáum ekki. Kannski það sé ástæða þess að við höfum fyllt hafið með svo miklu rusli að lífið í sjónum er í hættu. Eða kannski skiptir hafið okkur aðeins máli upp að því marki sem það gagnast okkur, þá getum við bara tæmt það og nýtt auðlindir þess eins hratt og við mögulega getum áður en okkar tími rennur út.

Trúin á sköpunarmátt Guðs krefst þess að allt líf sé verðmætt og hafi gildi í sjálfu sér. Í því ljósi þarf sjálfbær notkun að haldast í hendur við sjálfbæra umgengni, það á sérstaklega við um líf í vatni.

Spurningar

  • Versin úr sálmi 104 hvetja okkur til að sýna lífi í vatni virðingu. Af hverju ætli þessi áhersla á virðingu fyrir náttúrunni fái ekki meiri athygli í starfi og boðun kirkna?
  • Hvernig geta kirkjur og samfélög sýnt í verki að þau virði og vilji vernda lífi í vatni?

Áskorun

Hvernig getið þið breytt neyslu og venjum til að draga úr plastmengun í hafinu? Þekkið þið til fyrirtækja sem þið gætuð hvatt til að leggja sitt af mörkum til að draga úr plastmengun í hafinu?

Bæn

Guð, þú sem þekkir leyndardóma djúpsins, fyrirgef okkur eyðilegginguna og mengunina. Gefðu okkur visku og ný tækifæri til að sýna lífinu í vatni virðingu. Frelsaðu hafið undan þeim erfiðleikum sem við höfum valdið og hjálpaðu okkur að bæta skaðann. Allt og allir hvíla í faðmi þínum Guð. Amen.