Trúarlegar vangaveltur
Þegar Guð skapaði mannkyn gaf hann okkur það verkefni að gera jörðina okkur undirgefna og „ríkja yfir“ fiskum, fuglum og dýrum (1. Mósebók 1.28). Stundum eru þessi orð túlkuð sem guðleg réttlæting á að við arðrænum jörðina og auðlindir hennar. Það er galin túlkun þar sem þessum yfirráðum eru sett skýr mörk og þeim fylgir ábyrgð. Í sögunni um Edensgarðinn segir að Guð hafi sett Adam í garðinn til „yrkja hann og gæta hans“ (1. Mósebók 2.15). Að vera sköpuð í mynd Guðs þýðir að við eigum í sérstöku sambandi við Guð. Guð talar til manneskjunnar og gefur henni það hlutverk að hlúa að sköpunarverkinu. Við göngum inn í það hlutverk þegar við lifum af ábyrgð og sýnum ráðsmennsku í verki. Hinsvegar er mjög auðvelt fyrir okkur mannfólkið að vera sjálfhverf og óábyrg. Það sýndi sig strax í Edensgarðinum. Álíka sögur finnast víða í Biblíunni, til dæmis sagan sem Jesús sagði um ríka bóndann (Lúkas 12.13-21) sem trúði að ríkidæmi og neysla væri leiðin að góðu lífi. En þannig er það ekki, Jesús sagði: „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum þótt auðugur sé.“Spurningar
- Þegar Ísraelsmenn fengu að borða manna, brauð af himnum, í eyðimörkinni var þeim sagt að safna saman eins miklu og þörf væri á til að mæta þörfum dagsins (2. Mósebók 16.15-18). Getur sú saga kennt okkur eitthvað um ábyrga neyslu?
- Ræðið hvað ábyrg framleiðsla þýðir.
Áskorun
Er eitthvað sem þið getið gert til að hjálpa samfélaginu ykkar að verða sjálfbært í neyslu?
Bæn
Drottinn sem gætir okkar, gefðu að okkur skorti ekkert og kenndu okkur að sjá hvað við eigum. Hjálpaðu okkur að bera virðingu fyrir auðlindum, endurnýta og gefa gömlum hlutum nýtt líf. Takk fyrir allar þínar gjafir. Allt og allir hvíla í faðmi þínum Guð. Amen.