Trúarlegar vangaveltur
Spámaðurinn Amos starfaði í Ísrael í kringum árið 750 fyrir Krist. Á þeim tíma ríkti nokkur velsæld í ríkinu vegna ýmissa hernaðarlegra sigra og efnahagslegrar velgengni. En góðærið gagnaðist ekki öllum, valdaelítan jók ríkidæmi sitt á kostnað fátækra. Amos lýsir lífi hinna ríku svo: „Þeir hvíla á legubekkjum úr fílabeini, teygja úr sér á hægindum sínum. Þeir gæða sér á lömbum úr hjörðinni og kálfum úr alistíunni.“ (Amos 6.4) En á sama tíma er okkur gert ljóst að þetta ríkidæmi hvíli á ranglæti og valdamisræmi, „þér sem kúgið hina umkomulausu, misþyrmið fátækum“ (Amos 4.1). Spámaðurinn ákærir hina ríku fyrir að svindla á fólki í viðskiptum og gera almúgann að skuldaþrælum (Amos 8.4-6). Reynslan sýnir að aukin velmegun kyndir oft undir auknum ójöfnuði milli einstaklinga og hópa. Efnahagslegur ójöfnuður leiðir af sér félagslegan ójöfnuð þar sem fólk er dæmt út frá því hvað það á og hefur færi á að gera. Samkvæmt Amosi er velmegun sem ýtir undir ójöfnuð og valdamisræmi ekki sjálfbær, hún bíður dóms Guðs og mun valda hörmungum. Á sama tíma boðar Amos annan möguleika, „Leitið hins góða en ekki hins illa, þá munuð þér lifa!“, „eflið réttinn í borgarhliðinu.“ (Amos 5.14-15). Jöfnuður og jafnrétti krefst manngæsku, að við leitumst eftir að lifa þannig að við séum öll jöfn, en til að við séum sjálfbær þurfum við líka að gæta þess að vera réttlát. Það á ekki minnst við á efnahags- og stjórnmálasviðinu.Spurningar
- Hvaða vandamálum veldur ójöfnuður samfélagi sem stefnir að því að vera sjálfbært?
- Spámennirnir í Gamla testamentinu gagnrýndu valdhafa samtímans fyrir að byggja ríkidæmi sitt á ranglæti og misnotkun. Er það vandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag?
Áskorun
Vinnur einhver í þínu samfélagi að því að draga úr efnahagslegum ójöfnuði? Getur þú gert eitthvað til að styðja við það verkefni? Getur þú gert eitthvað til að auka umræðu um ójöfnuð í samfélaginu, á vinnustaðnum eða í skólanum þínum?
Bæn
Elsku Jesús, þú ferð ekki í manngreiningarálit, gerðu okkur líkari þér. Gefðu okkur visku til að vilja deila. Gefðu að réttlæti verði sterkara afl en græðgi í lífi okkar og gefðu okkur hugrekki til að mæta hvort öðru þrátt fyrir allt sem aðskilur okkur. Allt og allir hvíla í faðmi þínum Guð. Amen.